Halló, velkomin á heimasíðuna mína og bróður míns

Við heitum Ólafur Breki og Einar Atli og erum tvíburar



Við fæddumst þriðjudaginn 25. febrúar 2003. Mamma missti vatnið eldsnemma og var flutt með sjúkrabíl á Landsspítalann því við vorum ekki skorðaðir. Þá vorum við 38 vikna gamlir. Ólafur Breki var tvíburi A eiginlega alla meðgönguna, var neðar og í höfuðstöðu en 3 vikum áður en við fæddumst tróð Einar Atli fótunum undir Ólaf og varð þarmeð tvíburi A og gerði það að verkum að við urðum að koma með keisaraskurði. Við vorum skírðir í höfuðið á öfum okkar, þeim til mikillar gleði, seinni nöfnin vísa í tvíbura A og B því það vorum við kallaðir fyrstu dagana á spítalanum og alla meðgönguna.
Einar var 14 merkur og 53 cm og Ólafur 13.5 og 52 cm. Við vorum báðir hárprúðir, með dökkt bylgjað hár og ægilega sætir. Við þurftum að vera á vökudeild til að byrja með því lungun voru ekki alveg tilbúin en fengum sem betur fer að fara til mömmu og pabba eftir nokkra klukkutíma.
Eineggja eða tvíeggja? Við vitum það satt að segja ekki nákvæmlega. Fæðingarlæknirinn sagði að við hefðum verið með sitthvora fylgjuna og alveg aðskildir í móðurkviði sem þýddi að það væru 95% líkur á að við værum tvíeggja. Hinsvegar erum við óneitanlega mjög líkir þó við séum ekki nákvæmlega eins, Einar er breiðleitari og Óli langleitari. Við fylgjumst líka að í þroska og getu sem getur bent til þess að við séum eineggja. Ætli þetta skýrist ekki bara þegar við stækkum?





Aðgangsorðið er gælunafnið hennar mömmu okkar

netfangið hennar er sigolafs@landsspitali.is




Endilega skrifið í gestabókina okkar, okkur finnst svo gaman að fá skilaboð frá ykkur.


Hér fyrir neðan eru linkar á nokkra vini okkar:


Eiður Kristinsson


Óli litli Sigurborgar og Tótason


Elvar Kristinn Gapunay

Mattías Stefáns og Hörpuson


Kjartan Gauti


Inga Bryndís

Júlía úr sundinu



Elvar, Hreiðar og Steinunn og fullt af tvíburum


Mjög góð hjálparsíða.